15.10.2008 | 13:22
Sumarið 2008
Ég hef verið ansi pennalöt, ehemm takkalöt, að undanförnu. Það er reyndar bara búið að vera svo mikið að gera eftir sumarfríið.
Við fórum hringinn í kringum landið í sumarfríinu á 17 dögum. Byrjuðum á Hólum í Hjaltadal og Hofsósi, vorum svo í viku á Akureyri í íbúð og skoðuðum okkur um m.a. á Siglufirði, Ólafsfirði og Hjalteyri. Síðan fórum við til Vopnafjarðar, en þangað höfðum við ekki komið áður, og gistum í tvær nætur í bændagistingu. Hallormsstaður var næsti áfangastaður en þar vorum við í litlu tjaldi í þrjár nætur innan um hjólhýsi, fellihýsi og tjaldvagna. Skruppum út á Reyðarfjörð og alla leið niður í Viðfjörð, búúú , sáum reyndar engin Viðfjarðarundur bara geitung. Eftir sól og sælu á NA- og A-landi fórum við í þokuloft á Hornafirði og gistum þar í tvær nætur. Fórum út að borða á afmæliskvöldinu mínu, dýrindis humarpizzu. Á afmælisdaginn fórum við inn í Lón. Ég hafði meðferðis kökur í nesti en samt fattaði enginn hvaða dagur væri . Enduðum þann góða dag á heimsókn inn að Hoffellsjökli. Eftir góða dvöl á Höfn fórum við á Kirkjubæjarklaustur þar sem haldið var ættarmót afkomenda Kristófers og Rannveigar (meira um það á http://www.mosar.is/). Þar náðum við að tjalda og grilla Hornafjarðarhumar áður en rigning og rok skullu á á föstudagskvöldinu. Á laugardeginum fór ættarmótið hins vegar vel fram í ljómandi góðu veðri. Eftir þessa löngu ferð brunuðum við heim með smástoppi í Samgöngusafninu á Skógum og það var gott að sofna í eigin rúmi það kvöld.
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.