18.12.2008 | 10:05
Gleymnir jólasveinar eða ...
Bjössi fékk sjokk í morgun, það var ekkert í skónum í glugganum. Hurðaskellir er ekki til sagði hann, nánast með tár í augum. Ég reyndi að hugga hann og sagði að kannski hefði hann tafist vegna ófærðar, "eða fórstu kannski svona seint að sofa?"
Þegar hann fór svo að klæða sig í kuldaskóna steig hann á eitthvað hart. Auðvitað kom Hurðaskellir útihurðarmegin en ekki inn um glugga.
Flokkur: Vinir og fjölskylda | Facebook
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.